Starfsemi Gídeonfélaga
Markmið starfsins er að ávinna menn og konur fyrir Drottinn Jesú Krist. Dreifing Heilagrar ritningar og einstakra hluta hennar er aðferð til að ná því marki. Þessa dreifingu kannast margir við en persónulegir vitnisburðir og fyrirbænastarfið er almenningi ekki jafn kunnugt.
Gídeonfélagið gefur út heillaóskakort og samúðarkort sem eru fáanleg í flestum kirkjum. Með kortunum fylgja upplýsingar um reikningsnúmer sem greiða má inn á þegar kortið er notað og ræður gefandi upphæðinni. Er mjög handhægt að hafa nokkur kort heimavið til að grípa til þegar þörf er á.
Gídeonfélagar fara reglulega í heimsóknir í kirkjur og kynna þar starf félagsins. Þar gefst kirkjugestum tækifæri til að gefa fé í biblíusjóð félagsins.

Gídeonfélagið á Íslandi stofnað
Gídeonfélagið á Íslandi var stofnað í ágúst 1945. Félagið dreifir Nýja testamentum til tíu ára skólabarna, á hótelherbergi, við sjúkrarúm, við rúm aldraðra á dvalarheimilum, í fangaklefa og víðar. Gídeonfélagið á Íslandi er hluti af Alþjóðasamtökum Gídeonfélaga.
Helstu reikningsnúmer félagsins:
0525-26-103 (Biblíusjóður og gjafir)
0525-26-173 (Kort)
0525-26-539 (Launasjóður)
Kennitala Gídeonfélagsins: 510571-0109
| < Fyrri |
|---|

Starfsemi