Frásögn hjúkrunarfræðings
Þegar ég útskifaðist 1967 fékk ég Nýja testamenti frá ykkur en ég leit ekki í það í fjölda ára og vissi varla hvað ég hafði gert við það. Svo var það einn daginn mörgum árum síðar að mér var gefið kristilegt smárit með tilvitnunum í Biblíuna. Ég las þetta smárit og tilvitnanirnar höfðu þau áhrif á mig að ég varð óróleg, ég þurfti eitthvað meira, ég var eins og í lausu lofti. Nóttina eftir gat ég alls ekki sofið vegna þessa. Mér var órótt, eitthvað angraði mig.
Þá mundi ég allt í einu eftir því að ég átti að eiga Gídeon Nýja testamenti einhvers staðar sem mér var gefið þegar ég var hjúkrunarfræðingur. Ég fór fram úr rúminu og gerði mikla leit að testamentinu, ég sneri bókstaflega öllu við. Loks fann ég þetta hvíta litla Nýja testamenti upp í skáp hjá mér í eldhúsinu. Þetta var einmitt það sem mig vantaði. Síðar þessa sömu nótt frelsaðist ég. Ég gafst Jesú frelsara mínum og hef lifað með honum æ síðan.
Nýja testamentið lék lykilhlutverkið í því að þessa nótt gafst ég Kristi. Áhuginn kviknaði í mínu tilfelli ekki vegna beins lesturs í Nýja testamentinu, heldur við að lesa ritningarorð sem vöktu áhuga minn og urðu til þess að ég varð að fá eitthvað meira. Nýja testamentið hafði síðan úrslitaáhrif á afstöðu mína og þau áhrif á líf mitt að ég hef ekki orðið söm frá því þessa nótt, en þetta var árið 1981.
Ég hef notað þetta litla hvíta Nýja testamenti mikið síðan og þá ekki síst í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur. Í slíku starfi getur verið gott að bera Nýja testamentið á sér.
Mig hefur alltaf langað til að segja ykkur frá þessu og nú hef ég tækifærið. Þakka ykkur kærlega fyrir.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
